Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti á fundi sínum 21. október 2021 fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2022 og langtímaáætlun fyrir árin 2023 til 2026. Fjárhagsáætlunin byggir á útgönguspá fyrir árið 2021.
Helstu atriði í fjárhagsætlun fyrir árið 2022 eru:
- Áætlað er að rekstrarniðurstaða ársins 2022 verði jákvæð um 5.935 m.kr.
- Áætlað er að rekstrartekjur nemi 5.495 m.kr.
- Áætlað er að rekstrargjöld nemi 3.063 m.kr.
- Áætlað er að matsbreytingar fjárfestingareigna nemi 5.913 m.kr.
- Áætlað er að greiðslubyrði lána nemi 2.401 m.kr.
- Áætlað er að handbært fé í lok árs nemi 399 m.kr.
- Rekstur félagsins er sjálfbær á tímabilinu og handbært fé frá rekstri nægir til að greiða afborganir af núverandi og nýjum skuldum félagsins.
- Áætlað er að eiginfjárhlutfall verði 53,8% í lok árs.
- Áætlað er að íbúðum félagsins fjölgi um 95.
- Áætlað er að fjárfestingakostnaður nemi 3.988 m.kr.
- Áætlað er að 25% fjárfestingakostnaðar verði aflað með stofnframlögum og 75% með lánsfé.
- Stefnt er að áframhaldandi útgáfu félaglegra skuldabréfa til að standa undir fjárfestingakostnaði.
- Keyptar verða íbúðir í nýbyggingum í kjölfar kaupréttarsamninga, á almennum fasteignamarkaði og byggðir íbúðakjarnar.
Meðfylgjandi er áætlun ársins 2022 og langtímaáætlun 2023 til 2026.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, sigrun@felagsbustadir.is sími 520-1500
Viðhengi