Marel: Úthlutun kauprétta


Stjórn Marel hf. ákvað þann 8. febrúar 2022 að veita starfsmönnum kauprétti að allt að 7.996.000  hlutum í félaginu, þar af 1.675.000  til framkvæmdastjórnar. Kaupréttirnir verða veittir meðlimum framkvæmdastjórnar og starfsmönnum félagsins í lykilstöðum, samtals um 300 starfsmenn.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 6. mars 2019 og í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 17. mars 2021.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 5,54 á hlut.* Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti í eitt ár eftir að ávinnslutíma lýkur, að frátöldum fjórum lokuðum tímabilum sem hvert um sig telja 30 daga fyrir birtingu árshlutauppgjöra félagsins. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til fyrsta ársfjórðungs ársins 2026, þegar samningar renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Meðlimum framkvæmdastjórnar Marel ber að halda eftir hlutum sem nema fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum, þegar skattar hafa verið dregnir frá, þar til eftirfarandi fjárhæðarviðmiðum er náð, mælt í virði hlutafjáreignar í félaginu sem margfeldi af grunnárslaunum: forstjóri þrisvar sinnum árslaun; aðrir meðlimir framkvæmdastjórnar Marel tvisvar sinnum árslaun.
  • Aðrir kaupréttarhafar þurfa ekki að halda eftir hlutum.
  • Kaupréttur er aðeins gildur sé kaupréttarhafi í starfi hjá Marel (Marel hf. eða dótturfélaga þess) á nýtingardegi.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 25,8 milljónum hluta, eða um 3,3% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 7,4 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Upplýsingar um kauprétti sem veittir voru meðlimum framkvæmdastjórnar Marel eru í viðhengi.

Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á Euronext Amsterdam þann 8. febrúar 2022, þ.e. EUR 5,54 á hlut.

Viðhengi



Pièces jointes

20220209 - ÁOÞ 20220209 - LJ 20220209 - ÁS 20220209 - RC 20220209 - AKP 20220209 - DW 20220209 - FB 20220209 - GHG 20220209_UL