Marel: Úthlutun kauprétta


Marel: Úthlutun kauprétta

Þann 3. maí 2022 var tekin ákvörðun um að veita starfsmönnum kauprétti að 175.000 hlutum í félaginu, þar af voru 84.100 hlutir til framkvæmdastjórnar. Kaupréttirnir eru veittir meðlimi framkvæmdastjórnar og starfsmönnum félagsins í lykilstöðum, samtals 4 starfsmenn og úthlutunin tengist nýjum ráðningum og breytingum á lykilstöðum.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi og starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt voru á aðalfundi Marel hf. þann 16. mars 2022.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 4,95 á hlut.* Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti í eitt ár eftir að ávinnslutíma lýkur, að frátöldum fjórum lokuðum tímabilum sem hvert um sig telja 30 daga fyrir birtingu árshlutauppgjöra félagsins. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til annars ársfjórðungs ársins 2026, þegar samningar renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Meðlimum framkvæmdastjórnar Marel ber að halda eftir hlutum sem nema fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum, þegar skattar hafa verið dregnir frá, þar til eftirfarandi fjárhæðarviðmiðum er náð, mælt í virði hlutafjáreignar í félaginu sem margfeldi af grunnárslaunum: forstjóri þrisvar sinnum árslaun; aðrir meðlimir framkvæmdastjórnar Marel tvisvar sinnum árslaun.
  • Aðrir kaupréttarhafar þurfa ekki að halda eftir hlutum.
  • Kaupréttur er aðeins gildur sé kaupréttarhafi í starfi hjá Marel (Marel hf. eða dótturfélaga þess) á nýtingardegi.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 24,9 milljónum hluta, eða um 3,2% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 156 þúsund evrur og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Upplýsingar um kauprétti sem veittir voru meðlimi framkvæmdastjórnar Marel eru í viðhengi.

Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á Euronext Amsterdam þann 3. maí 2022, þ.e. EUR 4,95 á hlut.


Viðhengi



Pièces jointes

20220504 SK