Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti á fundi sínum 11. október 2023 fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2024 og langtímaáætlun fyrir árin 2025 til 2028. Fjárhagsáætlunin byggir á útgönguspá fyrir árið 2023.
Helstu atriði í fjárhagsáætlun fyrir árið 2024 eru:
- Áætlað er að rekstrarniðurstaða ársins 2024 verði jákvæð um 3.676 m.kr.
- Áætlað er að rekstrartekjur nemi 7.185 m.kr. eða áætluð aukning um 12,0% frá fyrra ári.
- Áætlað er að rekstrargjöld nemi 4.270 m.kr. eða áætluð aukning um 11,1% frá fyrra ári.
- Áætlað er að matsbreytingar fjárfestingareigna nemi 5.127 m.kr.
- Áætlað er að greiðslubyrði lána nemi 2.875 m.kr.
- Áætlað er að handbært fé í lok árs nemi 28 m.kr.
- Rekstur félagsins er sjálfbær á tímabilinu og handbært fé frá rekstri nægir til að greiða afborganir af núverandi og nýjum skuldum félagsins.
- Áætlað er að eiginfjárhlutfall verði 52,1% í lok árs.
- Áætlað er að íbúðum félagsins fjölgi um 98.
- Áætlað er að fjárfestingakostnaður nemi 6.493 m.kr.
- Áætlað er að 27,5% fjárfestingakostnaðar verði aflað með stofnframlögum og 72,5% með lánsfé.
- Keyptar verða íbúðir í nýbyggingum í kjölfar kaupréttarsamninga, á almennum fasteignamarkaði og byggðir íbúðakjarnar.
Meðfylgjandi er áætlun ársins 2024 og langtímaáætlun 2025 til 2028.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, sigrun@felagsbustadir.is sími 520-1500
Viðhengi