Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 18. september 2024


Hagar hf. luku í dag útboði á nýjum 5 mánaða víxlaflokki HAGA250226.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 2.260 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 9,78% - 9,99%.

Tilboðum að fjárhæð 1.020 m.kr. var tekið á 9,90% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 25. september 2024. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.


Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522 4000, asgrimur.gunnarsson@fossar.is

Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., arnar.saemundsson@fossar.is

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., geg@hagar.is