ICEQ - Ársuppgjör 2006


Framsetning ársreiknings ICEQ verðbréfasjóðs er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. 

Afkoma ICEQ verðbréfasjóðs árið 2006.

Lykiltölur í m.kr.		
		
Tímabil	2006	2005
 	 	 
(Tap), hagnaður tímabils færður á hlutdeildarskírteini	382	588
 	 	 
		
		
Dagsetning	31/12/06	31/12/05
 	 	 
Eigið fé	4.754	1046


"	Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á tímabilinu að fjárhæð 382 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn  færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum ICEQ verðbréfasjóðs.

"	Eigið fé sjóðsins í lok árs nam 4.754 m.kr. skv. efnahagsreikningi og hækkaði um 454 % frá árinu 2005.

"	Ársreikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun þeirra hafi ekkert leitt í ljós sem bendir til annars en að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahag í lok þess og breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðsins, í samræmi við lög og settar reikningsskilareglur.


Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili ICEQ verðbréfasjóðs þann 31.12.2006 nam 3.484 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 56,6% en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%.  Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með 26. mars 2007 í móttöku Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. að Borgartúni 19, Reykjavík.

Nánari upplýsingar um ársreikning verðbréfasjóðsins ICEQ og Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. veitir Ómar Kaldal Ágústsson, framkvæmdastjóri í síma 444-6000.


Attachments

ICEQ - 12 2006.pdf