Í samræmi við reglur um viðskipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka Íslands býður Seðlabankinn miðvikudaginn 4. júlí 2007, kl. 11 f.h., þeim lánastofnunum sem átt geta viðskipti við bankann, lán til 7 daga gegn veði í verðbréfum sem Seðlabankinn metur hæf til tryggingar. Lánin bjóðast á föstum vöxtum, 13,30 %. Beiðni um lán þarf að berast alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 4. júlí 2007. Hægt er að senda inn beiðni með símbréfi á nr. 569 9604, ef það er staðfest fyrirfram með símtali við alþjóða- og markaðssvið Seðlabankans (s. 569 9670/71). Um framkvæmd og frágang viðskipta vísast að öðru leyti til reglna um viðskipti lánastofnana við Seðlabanka Íslands. Tilkynnt verður um heildarfjárhæð viðskipta kl. 13:00 miðvikudaginn 4. júlí 2007. Seðlabanki Íslands býður einnig lánastofnunum innstæðubréf til 7 daga miðvikudaginn 4. júlí 2007 kl. 14:30 e.h. Hægt er að senda inn beiðni með símbréfi á nr. 569- 9604, ef það er staðfest fyrirfram með símtali við alþjóða- og markaðssvið Seðlabankans (s. 569 9670/671). Vextir innstæðubréfa eru 13,20%. Heildarfjárhæð innstæðubréfa verður tilkynnt kl. 15:00 miðvikudaginn 4. júlí 2007.
- Tilkynning um regluleg viðskipti við Seðlabanka Íslands
| Source: Seðlabanki Íslands