Niðurstöður Félagið á erlend dótturfélög sem stofnuð voru til að kaupa og reka Hibernia Atlantic sæstrenginn á milli Evrópu og N-Ameríku ásamt lendingarstöðvum í 4 löndum. Þá hefur félagið fjárfest í fjarskiptafyrirtæki á Írlandi, Magnet Networks, sem sérhæfir sig í uppbyggingu samskiptakerfis og efnisveitu um ljósleiðara. Einnig á félagið hlut í áströlsku fjarskiptafyrirtæki sem sérhæfir sig í samskiptum um gervihnetti. Helstu fjárfestingar félagsins hafa verið í framhaldstengingum Hibernia sæstrengsins, ásamt frekari uppbyggingu fjarskiptafyrirtækisins Magnet Networks Ltd. á Írlandi. Hibernia Atlantic hefur fjárfest í aukinni afkastagetu sæstrengsins. Þá hefur þjónustusvæði verið stækkað enn frekar með tengingum við Amsterdam, Brussel, Frankfurt og París. Hibernia hefur unnið stöðugt að áframhaldandi tækniþróun í samvinnu við Huawei Technologies. Sölutekjur Hibernia fara stöðugt vaxandi, bæði vegna fjölda nýrra viðskiptavina sem og aukinni sölu til þeirra sem fyrir voru. Nýlega hefur Hibernia kynnt áætlanir um að leggja sæstreng til Íslands á árinu 2008. Magnet Networks Ltd. á Írlandi starfar á bæði fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði. Stefnumótun fyrirtæksins á fyrsta ársfjórðungi leiddi til breyting á áherslum í markaðsstarfi. Nú er lögð áhersla á fyrirtækjamarkað og ljósleiðara til heimila en dregið er úr áherslu á ADSL2+ til heimila. Félagið hefur ráðið Vern Kennedy sem forstjóra, Eric Roden sem framkv.stjóra rekstrarsviðs og Mark Kellet sem fjármálastjóra. Þeir hafa allir marktæka reynslu af stjórnun fyrirtækja í fjarskiptaiðnaði. Þá hefur söludeild félagsins verður tvöfölduð. Fyrirtækið hefur fylgst með og ýtt á eftir breytingum á löggjöf um fjarskiptaumhverfi á Írlandi, sem taldar eru opna fyrir aukna samkeppni. Uppgjör félagsins fyrir tímabilið janúar til júní 2007 er innanhússuppgjör og hefur ekki verið endurskoðað. Viðaukar Hjálagt fylgja rekstrarreikningur, efnahagsreikningur og fjármagnsstreymi félagsins fyrir tímabilið janúar til júní 2007. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson, stjórnarmaður í félaginu í síma 696 9504.
2007
| Source: CVC á Íslandi ehf.