2007


Afkoma á fyrri árshelmingi 2007

•  Tekjur á fyrri árshelmingi 2.545,1 mkr.

•  121,6 mkr. hagnaður á fyrri árshelmingi, en  47,1 mkr. tap árið áður.

•  Afkoma batnar milli ára, einkum vegna lækkunar fjármagnsgjalda.

•  EBITDA afkoma var 211 mkr. sem er hækkun um 22 mkr. frá fyrra ári.


Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands
svf. og dótturfélagi þess, Reykjagarði hf. sem Sláturfélagið á 51% hlut í. 

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2007 var
121,6 mkr.  Á sama tímabili árið áður var 47,1 mkr. tap.  Eigið fé
Sláturfélagsins er tæpar 1.667 mkr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 42%. 

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 2.545 mkr. á fyrri
árshelmingi ársins 2007, en 2.259 mkr. á sama tíma árið áður og hækka því um
tæp 13%.  Aðrar tekjur voru 21 mkr en 17 mkr. árið áður. 

Vöru- og umbúðanotkun var 1.206 mkr. en 1.127 mkr. árið áður.  Launakostnaður
hækkaði um 17%, annar rekstrarkostnaður hækkaði um tæp 24% og afskriftir
hækkuðu um rúm 5%.  Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 94
mkr., en 78 mkr. árið áður.  Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir
(EBITDA) var 211 mkr.  en var 189 mkr. á sama tíma í fyrra. 

Fjármagnstekjur umfram fjármagnsgjöld voru 9 mkr., en fjármagnsgjöld voru 142
mkr. umfram fjármagnstekjur á sama tímabili í fyrra.  Gengishagnaður nam rúmum
56 mkr. samanborið við 96 mkr. gengistap árið áður.  Hagnaður af sölu
hlutabréfa var 2 mkr. en 5 mkr. árið áður.  Hlutdeild í afkomu
hlutdeildarfélaga var jákvæð um 17 mkr. en árið áður um 12 mkr.  Hagnaður af
rekstri tímabilsins var 121,6 mkr. en 47,1 mkr. tap var á sama tímabili árið
áður. 

Veltufé frá rekstri var 145 mkr. á fyrri árshelmingi ársins 2007, samanborið
við 206 mkr. fyrir sama tímabil árið 2006. 

Heildareignir Sláturfélagsins 30. júní  voru 3.957 mkr. og eiginfjárhlutfall
42%.  Veltufjárhlutfall var 2,6 á fyrri hluta ársins 2007, en 1,6 árið áður. 

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2007 var í aprílmánuði greiddur
7,0% arður af B-deild stofnsjóðs alls 13 mkr. og reiknaðir 7,0% vextir á
A-deild stofnsjóðs alls 16 mkr. 

Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti í samræmi við
heimildir í reglum félaga á Tilboðsmarkaði Kauphallar Íslands.  Ráðgert er að
birta afkomu ársins 2007 þann 22. febrúar 2008. 

Staða og horfur 

Gera má ráð fyrir að innflutningur á landbúnaðarvörum aukist á næstu árum
samfara lækkun tolla.  Sláturfélagið eins og önnur afurðafyrirtæki þurfa að ná
fram frekari hagræðingu í rekstri til að geta mætt þessum breytingum.  Á
undanförnum árum hafa verið gerðar breytingar á rekstri félagsins til að takast
á við aukna erlenda samkeppni. 
 
Stór hluti af matarneyslu landsmanna fer nú fram utan heimilis, á veitingahúsum
og í mötuneytum vinnustaða og skóla. Breyttu neyslumunstri hefur verið fylgt
eftir með aukinni áherslu á sölu í mötuneyti og veitingahús.  Þetta hefur
jafnframt kallað á breytt innkaup heimila sem mætt hefur verið með vöruþróun. 

Matvöruhluti innflutningsdeildar hefur aukið hlutdeild sína á markaði enda mörg
vörumerki deildarinnar vel þekkt á heimsvísu.  Sala á tilbúnum áburði til bænda
í samstarfi við Yara í Noregi hefur aukist umtalsvert enda vörugæðin  þekkt
meðal bænda.  Innflutningur á kjarnfóðri er að hefjast í samstarfi við DLG í
Danmörku en fóðurverð hér á landi hefur verið mun hærra en í nágrannalöndum
okkur.  Með innkomu SS á fóðurmarkað aukast valkostir bænda auk þess sem
mikilvægt er að bændur hér á landi eigi aðgang að úrvalsfóðri á hagstæðu verði
til að þeir séu betur í stakk búnir til að lækka framleiðslukostnað. 


Nánari upplýsingar veitir Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000

Attachments

ss juni2007.pdf