2007 - Leiðrétting - Frétt send út 2007-08-31 14:11:20 CET


Leiðrétting. Viðbótarupplýsingar við fréttatilkynningu og lykiltölur.


Árshlutareikningur Jeratúns ehf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2007
var staðfestur af stjórn og framkvæmdastjóra félagsins í dag, 31. ágúst 2007. 

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera sveitarfélögin ábyrgð á
skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis
Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því
undir að vera á vettvangi sveitarfélaga. 

Rekstrartap félagsins á fyrri hluta árs 2007 var 12.170.645 kr. og eigið fé var
neikvætt um 3.720.146 kr. samkvæmt árshlutareikningi. 

Skuldir félagsins eru vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir
afborgunum og vöxtum af lánum. 30. júní 2007 námu eftirstöðvar lána 436.738.730
kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á
greiðslu lánanna. 

Nánari upplýsingar veitir Björg Ágústsdóttir, framkvæmdastjóri í síma 8986605.

Attachments

jeratun ehf  1 1 -30 6 20071.pdf jeratun - lykiltolur.pdf