- Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. 2008


Aðalfundur 2008                                 

Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður haldinn mánudaginn 3. mars 2008  
kl. 14.00 í húsakynnum félagsins, Aðalstræti 6, Reykjavk.                       


Dagskrá:                                                                        

1.    Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á síðastliðnu starfsári. 

2.    Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda 
      lagður fram til staðfestingar. 

3.    Ákvörðun um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins, þ.m.t. greiðslu arðs. 

4.    Ákvörðun um tillögu stjórnar um starfskjarastefnu félagsins. 

5.    Ákvörðun um þóknun til stjórnar. 

6.    Kosning stjórnar félagsins. 

7.    Kjör endurskoðenda (endurskoðunarfélags). 

8.    Önnur mál löglega fram borin. 

Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega til félagsstjórnar, Aðalstræti 6,  
Reykjavík, skemmst fimm dögum fyrir aðalfundinn.  Í tilkynningunni skal greina  
nafn frambjóðanda, kennitölu, heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur     
stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu, hagsmunatengsl við 
helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga    
meira en 10% í félaginu.                                                        

Reikningar félagsins og tillögur liggja frammi á aðalskrifstofu hluthöfum til   
sýnis viku fyrir fundinn, en verða síðan afhent ásamt fundargögnum til hluthafa 
á fundarstað.                                                                   


	Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.