SPRON hf. frestar birtingu uppgjörs fyrir þriðja ársfjórðung vegna óvissu á íslenskum fjármálamarkaði. Uppgjör þriðja ársfjórðungs verður birt í viku 46 í stað viku 44 eins og áður var auglýst. Birtingardagur og upplýsingar um kynningarfund í tengslum við uppgjörið verða kynnt síðar. Frekari upplýsingar veitir Jóna Ann Pétursdóttir, forstöðumaður almannatengsla í síma 550 1771.