- Exista stefnt af HOLT Funding


Exista hefur borist stefna frá HOLT Funding 2008-1 Limited hf. þar sem gerðar
eru þær dómkröfur að Exista greiði félaginu samtals tæplega 19 milljarða króna
vegna lánssamnings sem upphaflega var gerður við Íslandsbanka hf. (síðar
Glitnir banki hf.). Exista mun taka til varna í málinu enda hefur félagið gert
upp kröfu HOLT Funding með skuldajöfnuði.