-Birtingu árshlutareiknings frestað. Samkvæmt drögum að árshlutareikningi er EBITDA 8,4 milljarðar króna í þriðja ársfjórðungi 2009 samanborið við 6,2 milljarða króna á sama tíma 2008.


Birtingu árshlutareiknings frestað. Samkvæmt drögum að árshlutareikningi er
EBITDA 8,4 milljarðar í þriðja ársfjórðungi 2009 samanborið við 6,2 milljarða á
sama tíma 2008. 

Birtingu árshlutareiknings 30.9.2009, sem kannaður er af endurskoðendum
félagsins, hefur verið frestað fram í viku 49.  Eins og fram hefur komið í
upplýsingum frá félaginu er unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu þess. 
Þeirri vinnu miðar ágætlega en er ekki lokið og vegna þeirrar vinnu dregst gerð
árshlutareiknings félagsins.  Reiknað er með að mikilvægum þáttum í
endurskipulagningunni ljúki í nóvember. 

Samkvæmt drögum að árshlutareikningi var heildarvelta Icelandair Group á þriðja
ársfjórðungi 53,7 milljarðar króna og jókst um 29% frá sama tímabili í fyrra. 
EBITDA  var 8,4 milljarðar króna en var 6,2 milljarðar króna á sama tímabili í
fyrra.  Afskriftir og fjármagnskostnaður hækka talsvert milli ára. 

Á tímabilinu janúar - september var heildarvelta Icelandair Group  108,1
milljarður króna og jókst um 28%  frá sama tímabili í fyrra.  EBITDA var 7,5
milljarðar króna en var 7,2 milljarðar króna 2008.  Afskriftir og
fjármagnskostnaður hækka talsvert milli ára.  Handbært fé í lok september nam
6,1 milljarði króna en var 7,4 milljarðar í lok september 2008. 


Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group:

„Rekstarafkoma þriðja ársfjórðungs er langt umfram upphaflegar áætlanir ársins
og ef horft er á rekstrarafkomu fyrir fjármagnsliði er um verulegan
rekstrarbata að ræða frá fyrra ári en afskriftir og fjármagnskostnaður hækka
talsvert milli ára.   Almennt séð eru félög innan samstæðunnar að skila góðri
afkomu á þriðja ársfjórðungi.   Í erfiðu árferði, hefur starfsmönnum
samstæðunnar með öflugu markaðsstarfi erlendis og kostnaðaraðhaldi tekist að
skila góðri rekstrarafkomu. Jafnframt hafa ytri aðstæður svo sem gengi Evru
gagnvart Bandaríkjadal og þróun olíuverðs hjálpað til. 

Miðað við sömu forsendur og í árshlutareikningi 30. júní sl. hafa helstu
lykilstærðir , svo sem lausafjár- og eiginfjárhlutföll, lagast talsvert. Unnið
hefur verið að endurskipulagningu efnahagsreiknings félagsins í nánu samstarfi
við viðskiptabanka um alllangt skeið.  Reiknað er með að mikilvægum þáttum
þeirrar vinnu ljúki í nóvember.  Vegna þessa hefur gerð árshlutareiknings
dregist og er birtingu hans frestað til viku 49.“ 

Frekari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group 		sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group	sími: 665-8801

Attachments

q3_2009_isl.pdf