Standard og Poor‘s hækkar lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar


Matsfyrirtækið Standard og Poor‘s (S&P) hefur hækkað lánshæfiseinkunn
Landsvirkjunar úr BB (neikvæðar horfur) í BB+ (neikvæðar horfur). 

Í fréttatilkynningu frá Standard og Poor‘s kemur fram að hækkun
lánshæfiseinkunnar Landsvirkjunar stafi einkum af breyttum áherslum í rekstri
fyrirtækisins og því að markvisst sé unnið að því að draga úr áhættu í rekstri. 

Í tilkynningu Standard og Poor‘s segir að rekstraráhætta Landsvirkjunar hafi
minnkað með því að dregið hafi verið úr tengingu tekna við álverð, sem dragi úr
áhættu í rekstri. Lausafjárstaða fyrirtækisins hafi styrkst með auknu aðgengi
að fjármagni og hefur ekki lengur áhrif á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar.
Afkoma á fyrri hluta ársins 2010 gefur til kynna að búast megi við að afkoma
fyrirtækisins batni enn frekar á komandi árum. Þá telur S&P það jákvæða þróun
að Landsvirkjun leggi nú aukna áherslu á arðsemi í stefnu sinni. Að lokum er
bent á að neikvæðar horfur í einkunn Landsvirkjunar byggi á neikvæðum horfum á
lánshæfismati íslenska ríkisins. 



Nánari upplýsingar veitir: 
Ragna Sara Jónsdóttir
yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar
sara@lv.is
515 9000 / 849 2122

Attachments

landsvirkjun ru 20 oct 2010.pdf