Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2010.
- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi.
- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
- Ársreikningurinn var endurskoðaður af KPMG ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit KPMG ehf. að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2010, efnahagi hans 31. desember 2010 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2010, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða.
Eigið fé Stefnis hf., sem er rekstrarfélag LFEST1, nam 2.214 millj. kr. í lok árs 2010 samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, er 108% en samkvæmt lögum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%. Stefnir hf. er dótturfélag Arion banka hf. og er A-hluti ársreiknings félagsins hluti af samstæðureikningi bankans.
Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag hjá Stefni hf., Borgartúni 19, Reykjavík.
Nánari upplýsingar um ársreikning LFEST1 veitir Þorkell Magnússon sjóðstjóri, í síma 444 7472.