Árshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins LFEST1 vegna fyrstu sex mánaða ársins 2011


Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2010.

  • Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi.
  • Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Ernst & Young hf. í samræmi við alþjóðlega staðla um könnun árshlutareikninga.

Eigið fé Stefnis hf., sem er rekstrarfélag LFEST1, nam 2.025 millj. kr. í lok 30.júní 2011 samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, er 97,7%% en samkvæmt lögum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%. Stefnir hf. er dótturfélag Arion banka hf. og er A-hluti ársreiknings félagsins hluti af samstæðureikningi bankans.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag hjá Stefni hf., Borgartúni 19, Reykjavík og á heimasíðu félagsins www.stefnir.com

Nánari upplýsingar um ársreikning LFEST1 veitir Þorkell Magnússon sjóðstjóri, í síma 444 7472.

 


Attachments