Islandsbanki hf. : MP banki annast viðskiptavakt með sértryggt skuldabréf ISLA CBI 24


Íslandsbanki hf. hefur samið við MP banka um að hinn síðarnefndi annist
viðskiptavakt með ISLA CBI 24, útgefnum sértryggðum skuldabréfum (e. Covered
Bonds) Íslandsbanka. Í því felst að setja fram daglega kaup- og sölutilboð í
bréfin, áður en markaður er opnaður, að lágmarki ISK 20.000.000 króna að
nafnverði.

MP banki mun endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að því hefur verið
tekið. Tilboðin gilda aðeins innan dags og hámarksmunur kaup- og sölutilboða
ákvarðast af verði gildra tilboða og má vera 1,8%.

Eigi viðskiptavakt MP banka viðskipti á einum degi fyrir 60.000.000 kr. að
nafnvirði er honum heimilt að hætta framsetningu tilboða fram á næsta
viðskiptadag.

Viðskiptavaktin gildir frá og með miðvikudeginum 7. mars 2012.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187 / 844 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir,
    gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is  og í síma 440 3678 / 844 3678.


[HUG#1591984]