Landsbréf – Árshlutauppgjör 30. júní 2012


Stjórn Landsbréfa hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði Landsbankans, hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrri árshelming 2012.  Þann 30. júní 2012 önnuðust Landsbréf hf. rekstur 21 sjóðs um sameiginlega fjárfestingu en á tímabilinu voru tveir sjóðir sameinaðir í einn og enginn nýr stofnaður.  Í lok tímabilsins nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsbréfa 59,4 milljörðum króna.

 

Lykiltölur í þúsundum króna: Sjá viðhengi.

 

  • Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur árshlutareikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða.  Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu. 

 

  • Árshlutareikningurinn er með könnunaráritun frá KPMG sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrri helmingi ársins 2012, efnahag þess 30. júní 2012 og breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðanna á fyrri helmingi ársins 2012, í samræmi við lög og settar reikningsskilareglur.

 

Þann 22. mars 2012 skrifaði stjórn Landsbréfa hf. undir kaupsamning við Landsvaka hf. þar sem rekstur allra sjóða félagsins var keyptur af Landsvaka hf.  Kaupverð sjóðanna var 530 milljónir króna.  Kaupverðið var ákveðið með tilliti til tveggja óháðra verðmata sem framkvæmd voru fyrir stjórnir félaganna.  Samhliða kaupunum var eigið fé Landsbréfa hf. aukið um 660 milljónir króna.  Ekki verður um að ræða neinar breytingar fyrir hlutdeildarskírteinishafa sjóðanna, reglur þeirra og útboðslýsingar verða óbreyttar sem og rekstur sjóðanna þar sem allt starfsfólk Landsvaka fluttist yfir til Landsbréfa.  Landsbréf hafa gert sambærilegan útvistunarsamning við Landsbankann og Landsvaki hafði.  Yfirfærsla sjóðanna til Landsbréfa fór fram um mánaðamótin mars-apríl.

 

Þann 11. maí 2012 tilkynnti eigandi félagsins, Landsbankinn hf., að ætlunin væri að færa eignasafn Horns hf., sem einnig er dótturfélag Landsbankans hf. til Landsbréfa.  Vinna við þá yfirfærslu er í gangi og vonast er til að henni ljúki sem fyrst.  Við þessi tímamót lét Ari Skúlason af starfi sem framkvæmdastjóri félagsins og í byrjun júní var nýr framkvæmdastjóri ráðinn, Sigþór Jónsson, sem tekur til starfa 1. september næstkomandi.

 

Skuldabréfa- og hlutabréfamarkaðir á Íslandi eru enn nokkuð veikburða en sýna þó batamerki.  Eitt nýtt félag var skráð á hlutabréfamarkað á fyrri árshelmingi og nokkur félög stefna að skráningu á næstu misserum.  Markaður fyrir skuldabréf fyrirtækja er enn óvirkur en bankastofnanir hafa gefið út sértryggð skuldabréf með ágætum árangri.  Skuldabréfaútgáfa sveitarfélaga virðist vera að ná sér á strik og hefur Lánasjóður sveitarfélaga náð að fjármagna sig að því marki sem hann hefur þurft á ágætum kjörum.  Markaður fyrir skuldabréf með ábyrgð ríkisins er enn sem komið er langvirkasti markaðurinn fyrir verðbréf og hefur ávöxtunarkrafa á þeim haldist lág og ekki er fyrirséð að það breytist í náinni framtíð sérstaklega ekki þegar litið er til þess að verðbólga virðist vera á niðurleið.

 

Óvissa í efnahagsmálum heimsins er ennþá mikil og hefur í raun farið vaxandi eftir því sem liðið hefur á árið.  Það hefur haft áhrif á sjóði sem eiga erlendar eignir og eftir nokkuð miklar hækkanir á erlendum hlutabréfamörkuðum framan af ári hafa markaðir gefið eftir og nú er svo komið að þær hækkanir eru að miklu leyti gengnar til baka.

 

Hagnaður varð af rekstri félagsins á fyrri árshelmingi að fjárhæð 10 milljónir króna samkvæmt rekstrarreikningi félagsins.  Eigið fé Landsbréfa hf. í lok tímabilsins nam 689 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.  Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 95,7% en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8% samkvæmt lögum.

 

Nánari upplýsingar um árshlutareikning Landsbréfa hf. veitir Egill Darri Brynjólfsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa í síma 410 2512.

 

 


Attachments