Fjárhaldsstjórn sveitarfélagsins Álftaness hefur náð samkomulagi við kröfuhafa sveitarfélagsins í samræmi við skýrslu og fjárhagsáætlun fjárhaldsstjórnar frá 13.12.2010. Samningar við Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, Sameinaða lífeyrissjóðinn, Eignarhaldsfélagið fasteign, Lánasjóð sveitarfélaga og Arion banka eru háðir því að sveitarfélagið Álftanes sameinist öðru sveitarélagi fyrir árslok 2012. Samþykkt hefur verið að atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaganna Álftaness og Garðabæjar fari fram laugardaginn 20. október.
Snorri Finnlaugsson, bæjarstjóri
Viðhengi:
Greinargerð samstarfsnefndar um sameiningu