Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2010.
-
Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi.
-
Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
-
Ársreikningurinn var endurskoðaður af Ernst & Young hf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2012, efnahagi hans 31. desember 2012 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2012, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu
Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is
Nánari upplýsingar um ársreikning LFEST1 veitir Flóki Halldórsson, í síma 444 7464.