Fagfjárfestasjóðurinn REG 2 Smáralind sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.
- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt rekstrarreikningi.
- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Ernst & Young ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2013, efnahagi hans 30. júní 2013 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins 2013, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu
Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með morgundeginum á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is
Nánari upplýsingar um árshlutareikning REG 2 Smáralind veitir Heiðar Ingi Ólafsson sjóðstjóri, í síma 444 7421.