Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2014, þriðjudaginn 26. ágúst næstkomandi eftir lokun markaðar.
Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á fyrri árshelmingi 2014 verður haldinn morguninn eftir, þann 27. ágúst, í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3, 5. hæð, kl. 08:30. Léttur morgunverður frá 08:15.
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum.
Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins á vefsíðu félagsins:
http://vis.is/fjarfestar