Fagfjárfestasjóðurinn REG 1 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf árið 2012, tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014.
- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi.
- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Ernst & Young ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2014, efnahagi hans 31. desember 2014 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2014, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu
Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is
Nánari upplýsingar um ársreikning REG 1 veitir Flóki Halldórsson, í síma 444 7464.