Fjarskipti hf. : Breytingatillögur frá Gildi og uppfærð dagskrá aðalfundar 2015


Gildi lífeyrissjóður lagði fram tvær tillögur fyrir aðalfund Fjarskipta hf. rétt áður en frestur til að leggja fram slíkar tillögur rann út. Bréf Gildis lífeyrissjóðs með tillögunum og tilheyrandi greinargerðum fylgir hér í hjálögðu skjali. Báðar lúta tillögurnar að heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum og hvernig viðvarandi upplýsingaskyldu um heimildirnar skuli gætt.

Dagskrá aðalfundar Fjarskipta hf. sem haldinn verður 19. mars nk. hefur verið leiðrétt til samræmis við tillögugerðina og fylgir hér með.


Attachments

Tillögur Gildis fyrir aðalfund Fjarskipta hf. 2015 Endanleg dagskrá aðalfundar Fjarskipta hf. 2015