Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða Héraðsdóms í máli SHS gegn Lánasjóði sveitarfélaga


Í gær, 12. mars 2015, féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins bs. gegn Lánasjóði sveitarfélaga ohf. Í dómi Héraðsdóms er viðurkennt að lán sem ágreiningur var um hafi verið í íslenskum krónum og bundið ólögmætri gengistryggingu í skilningi 13. og 14. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Þá var Lánasjóði sveitarfélaga gert að greiða Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins 370.442.781 krónur þar sem lán það sem ágreiningur var um hafði verið greitt upp að fullu miðað við að það væri í erlendum myntum. Ekki hefur verið ákveðið hvort málinu verður áfrýjað til Hæstaréttar Íslands.

Umrætt lán var annað tveggja lána í lánasafni Lánasjóðs sveitarfélaga þar sem hvorki var tiltekin fjárhæð erlendra mynta né hlutfall þeirra í meginmáli lánssamnings. Um hitt lánið hefur þegar verið dæmt, sbr. tilkynningu dags. 13. nóvember 2013. Lánasjóður sveitarfélaga telur þau sjónarmið sem dómarnir um þessi tvö lán byggja á ekki eiga við um önnur lán í lánasafni sjóðsins enda hafi þessi tvö lán sérstöðu að framangreindu leiti, en eru þó ekki að öllu leyti sambærileg.

Dómsniðurstaðan hefur ekki áhrif á getu Lánasjóðsins til að standa við skuldbindingar sínar. Þá er áréttað að ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar Íslands.

Meðfylgjandi er dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins bs. gegn Lánasjóði sveitarfélaga ohf. 

Nánari upplýsingar veitir:
Óttar Guðjónsson
Sími: 515 4949
e-mail: ottar@lanasjodur.is


Attachments

Dómur í máli SHS gegn LS.pdf