Fjarskipti hf. : Niðurstöður aðalfundar 19. mars 2015


Á aðalfundi Fjarskipta hf. í dag, 19. mars 2015, voru samþykktar tillögur um ráðstöfun hagnaðar félagsins, arðgreiðslustefnu, starfskjarastefnu, þóknun til stjórnarmanna, kosningu endurskoðunarstofu, breytingar á samþykktum, þ.m.t. um lækkun hlutafjár, kynjahlutföll í stjórn og að getið verði um heimild til kaupa á eigin hlutum í sérstökum viðauka við samþykktir félagsins. Þá var samþykkt tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum. 

Stjórn félagsins fyrir næsta starfsár var sjálfkjörin. Hún hefur skipt með sér verkum og er skipuð þannig:

Í aðalstjórn:

 * Heiðar Guðjónsson, formaður stjórnar, kt. 220472-3889

 * Hildur Dungal, varaformaður stjórnar, kt. 140571-3859

 * Anna Guðný Aradóttir, meðstjórnandi, kt. 110156-7669

 * Hjörleifur Pálsson, meðstjórnandi, kt. 281163-4269

 * Vilmundur Jósefsson, meðstjórnandi, kt. 240849-7399

Í varastjórn:

 * Agla Elísabet Hendriksdóttir, kt. 300167-5869

 * Yngvi Halldórsson, kt. 300777-5039 

Þá var sjálfkjörið í sæti tveggja nefndarmanna af þremur í tilnefningarnefnd félagsins. Þessir tveir nefndarmenn eru:

 * Ragnheiður S. Dagsdóttir, kt. 200168-3569

 * Ásdís Jónsdóttir, kt. 160972-3359

Niðurstöður aðalfundar má að öðru leyti sjá í meðfylgjandi viðhengi.


Attachments

Niðurstöður aðalfundar Fjarskipta hf. 19. mars 2015