AAM GLEQ gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. í febrúar 2014. Meðfylgjandi er ársreikningur 2014 fyrir fagfjárfestasjóðinn AAM GLEQ. * Hagnaður sjóðsins á árinu 2014 nam 75 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. * Hrein eign sjóðsins nam 590 þús. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. * Ársreikningurinn var endurskoðaður af KPMG hf. Það er álit endurskoðanda að ársreikningur sjóðsins gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu hans 31.12.2014 og breytingu á handbæru fé á árinu 2014, í samræmi við lög um ársreikninga. Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, ALDA sjóðir hf. í síma 510-1090. [HUG#1904878]