Í 37. viku 2015 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.110.088 eigin hluti fyrir kr. 13.741.581 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Sjóvá eftir viðskipti |
7.9.2015 | 11:31:34 | 16.806 | 12,07 | 202.848 | 11.340.587 |
7.9.2015 | 11:31:39 | 16.806 | 12,07 | 202.848 | 11.357.393 |
7.9.2015 | 12:36:36 | 19.066 | 12,07 | 230.127 | 11.376.459 |
7.9.2015 | 13:08:37 | 19.066 | 12,07 | 230.127 | 11.395.525 |
10.9.2015 | 15:28:46 | 19.066 | 12,3 | 234.512 | 11.414.591 |
10.9.2015 | 15:55:41 | 219.278 | 12,3 | 2.697.119 | 11.633.869 |
11.9.2015 | 11:31:23 | 800.000 | 12,43 | 9.944.000 | 12.433.869 |
Samtals | 1.110.088 | 13.741.581 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. júlí 2015, sbr. og tilkynning til Kauphallar dags. 7. júlí 2015.
Sjóvá hefur nú keypt samtals 12.433.869 hluti í félaginu sem samsvarar 31,08% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 144.937.180. Sjóvá á nú samtals 0,78% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 40.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016, en þó aldrei síðar en 26. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.