Í 37. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 639.303 eigin hluti fyrir 13,4 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
11.9.2015 | 09:56 | 24.000 | 20,95 | 502.800 | 24.000 |
11.9.2015 | 10:05 | 615.303 | 20,95 | 12.890.598 | 639.303 |
Samtals | 639.303 | 13.393.398 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 639.303 hluti í félaginu sem samsvarar 2,1% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 13,4 milljónum króna. TM á nú samtals 0,1% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is