Sjóvá-Almennar tryggingar hf. munu birta uppgjör þriðja ársfjórðungs 2016 eftir lokun markaða fimmtudaginn 27. október. Markaðsaðilum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð kl. 8:30 föstudaginn 28. október. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.
Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef Sjóvár www.sjova.is frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á vefnum á slóðinni www.sjova.is/afkomukynningar.