Í viku 48 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 2.083.132 eigin hluti að kaupverði 30.908.667 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
30.11.2016 | 11:46:09 | 19.066 | 14,90 | 284.083 |
30.11.2016 | 13:09:13 | 45.000 | 14,90 | 670.500 |
30.11.2016 | 14:31:39 | 19.066 | 14,90 | 284.083 |
01.12.2016 | 14:37:23 | 1.000.000 | 14,90 | 14.900.000 |
02.12.2016 | 15:02:01 | 1.000.000 | 14,77 | 14.770.000 |
Samtals | 2.083.132 | 30.908.667 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016.
Sjóvá átti 49.779.829 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 51.862.961 eigin hluti eða sem nemur 3,32% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 27.170.078 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,74% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 376.931.980 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 131.550.793 hlutum eða sem nemur 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000