Aðalfundur Vátryggingafélags Íslands hf. verður haldinn miðvikudaginn 15. mars 2017 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík.
Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá aðalfundar og ályktunartillögum stjórnar, sem innihalda m.a. tillögur um breytingar á samþykktum og starfskjarastefnu.