Ársreikningur RARIK fyrir árið 2016

Hagnaður RARIK á árinu 2016 var tveir milljarðar króna.


Samkvæmt rekstrarreikningi nam hagnaður ársins 2.040 milljónum króna sem er meira en áætlanir gerðu ráð fyrir, en lækkaði um 8% frá árinu 2015 þegar hagnaður ársins nam 2.220 milljónum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 5.066 milljónum króna eða 34,5% af veltu ársins, samanborið við 31,3% á árinu 2015. Handbært fé frá rekstri nam 3.487 milljónum króna.

Rekstrartekjur hækkuðu um 10,7% frá árinu 2015 og námu 14.670 milljónum króna og rekstrargjöld hækkuðu á milli ára um 6% og námu 11.399 milljónum króna.

Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2016 nam 3.271 milljónum króna sem er 31% hækkun frá fyrra ári. Styrking krónunnar og lág verðbólga gerði það að verkum að fjármagnsliðir voru hagstæðari en áætlað var. Hagnaður var því meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir.  Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur námu um 293 milljónum króna, en á árinu 2015 námu þau 850 milljónum króna. Hlutdeild í tapi Landsnets hf., hlutdeildarfélags RARIK, sem færð er í rekstrarreikning nam 344 milljónum króna á móti hlutdeild í hagnaði að upphæð 903 milljónum á árinu 2015.

Samkvæmt efnahagsreikningi námu heildareignir RARIK í árslok 57.722 milljónum króna og lækkuðu um 29 milljónir króna á milli ára. Heildarskuldir námu 21.588 milljónum króna og lækkuðu um 540 milljónir króna frá fyrra ári. Eigið fé var 36.134 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall því 62,6% samanborið við 61,7% í árslok 2015. Fjárfestingar ársins að frádregnu söluandvirði seldra rekstrarfjármuna námu 3.029 milljónum króna, sem er minna en áætlað var en um 597 milljónum króna hærra en árið á undan.

Stjórn RARIK ohf. leggur til við aðalfund að greiddar verði 310 milljónir króna í arð til eiganda RARIK sem er Ríkissjóður Íslands.

Samstæðuársreikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. 

RARIK tók erlent lán að fjárhæð 3.525 milljónir króna á árinu 2016 til fjármögnunar frekari fjárfestinga í lagningu jarðstrengja.

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2017 eru góðar. Gert er ráð fyrir að hagnaður ársins verði heldur minni en á árinu 2016 og að fjárfestingar samstæðunnar aukist á milli ára.

Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna.

                               
  2016   2015   2014   2013   2012   2011   2010   2009
                               
Rekstartekjur  14.670   13.252   12.521   11.793   11.412   10.768   9.694   8.703
Rekstrargjöld  11.399   10.755   9.513   9.108   8.428   8.547   7.907   6.973
Rekstrarhagnaður 3.271   2.497   3.008   2.684   2.984   2.221   1.787   1.731
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) -293   -850   -748   -867   -1.282   -1.233   56   -1.804
Áhrif hlutdeildarfélags -344   903   847   491   180   189   802   331
Hagnaður/tap  fyrir skatta 2.634   2.550   3.107   2.309   1.882   1.177   2.646   257
Tekjuskattur -594   -330   -446   -362   -341   -164   -127   440
Hagnaður (Tap) 2.040   2.220   2.661   1.947   1.541   1.014   2.518   697
                               
Eignir samtals  57.722   57.751   48.536   46.787   44.569   37.262   37.032   35.663
Eigið fé 36.134   35.623   29.495   27.144   25.507   19.327   18.314   15.982
Skuldir 21.588   22.128   19.041   19.643   19.062   17.935   18.718   19.682
                               
Handbært fé frá rekstri 3.487   3.587   3.837   3.541   3.257   2.779   2.067   1.847
Greidd vaxtagjöld 727   741   649   657   630   623   842   749
                               
EBITDA 5.066   4.151   4.719   4.300   4.351   3.520   3.054   2.843
Vaxtaþekja 6,97   5,60   7,27   6,54   6,91   5,65   3,63   3,80
Eiginfjárhlutfall 62,6%   61,7%   60,8%   58,0%   57,2%   51,9%   49,5%   44,8%
                               
Velta                              
EBITDA/Velta 34,5%   31,3%   37,7%   36,5%   38,1%   32,7%   31,5%   32,7%

 

Ársreikningur RARIK 2016 var samþykktur á fundi stjórnar þann 23. febrúar, 2017 og heimilaði stjórn birtingu hans í Kauphöll Íslands.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000.


Attachments

Fréttatilkynning 31.12.2016.pdf Samstæðuársreikningur RARIK 2016.pdf