Á aðalfundi Vátryggingafélags Íslands sem haldinn var í dag var samþykkt tillaga stjórnar um að félagið greiði hluthöfum arð sem nemur kr. 0,46 á hlut fyrir árið 2016. Þá var sjálfkjörið í nýja stjórn VÍS.
Heildarfjárhæð arðgreiðslunnar er um 1.023 milljónir króna. Arðsákvörðunardagur er 15. mars 2017 sem þýðir að skráðir hluthafar í lok dags 17. mars 2017 (arðsréttindadagur) eiga rétt á arðgreiðslu. Arðleysisdagur er því 16. mars 2017 sem er fyrsti viðskiptadagur eftir arðsákvörðunardag og útborgunardagur er 6. apríl 2017 (arðgreiðsludagur).
Aðalfundur heimilaði stjórn félagsins að kaupa á næstu 18 mánuðum hluti í félaginu, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun, þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum fullnægðum, allt að 10% af hlutafé þess.
Aðalfundur samþykkti einnig að lækka hlutafé félagsins úr kr. 2.296.436.567 að nafnverði í kr. 2.223.497.541 að nafnverði, og að eigin hlutum félagsins að nafnverði kr. 72.939.026 sé þannig eytt.
Tillögur til breytinga á samþykktum voru allar samþykktar fyrir utan eina sem laut að heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar. Samþykktir félagsins og starfskjarastefna þess eru viðfestar.
Stjórn VÍS skipa:
Aðalstjórn
Gestur Breiðfjörð Gestsson
Helga Hlín Hákonardóttir
Herdís Dröfn Fjeldsted
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir
Valdimar Svavarsson
Varastjórn
Andri Gunnarsson
Sandra Hlíf Ocares
Ný stjórn hélt stjórnarfund eftir aðalfundinn og skipti með sér verkum. Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir var kjörin formaður stjórnar og Helga Hlín Hákonardóttir varaformaður.
Lesa má nánar um helstu niðurstöður aðalfundar í viðfestu skjali.
Ársskýrsla félagsins fyrir árið 2016 hefur verið gefin út. Skýrslan er eingöngu gefin út í vefútgáfu. Ársskýrsluna má nálgast á heimasíðu VÍS og á eftirfarandi vefslóð: http://arsskyrsla2016.vis.is/