Miðvikudaginn 5. apríl 2017 var ársreikningur Snæfellsbæjar 2016 afgreiddur í bæjarráð til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Fyrri umræða um ársreikninginn var miðvikudaginn 5. apríl 2017 og síðari umræða verður fimmtudaginn 4. maí n.k.
Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum en í B-hluta eru fyrirtæki sem eru í eigu sveitarfélagsins og eru rekin sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar, sem eru: Félagsheimilið Klifi, Félagsheimilið Röst, Veitustofnanir Snæfellsbæjar, Hafnarsjóður Snæfellsbæjar, Húsnæðisnefnd Snæfellsbæjar, Leiguíbúðir með hlutareign og Dvalarheimilið Jaðar.
Rekstur Snæfellsbæjar mjög góður
Rekstur Snæfellsbæjar gekk vel á árinu og var rekstrarniðurstaðan töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða um 217,9 millj. króna fyrir samantekinn rekstrarreikning A- og B-hluta.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 2.268 millj. króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 1.979,9 millj. króna. Rekstrartekjur A- hluta námu um 1.808 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 1.569 millj. króna.
Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A- og B-hluta var jákvæð um 217,9 millj. króna en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 44,2 millj. króna. Rekstrarafkoman varð því töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 173,7 millj. króna. Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 149,6 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 1 millj. króna. Afkoma A-hluta varð því betri sem nemur 148,6 millj. króna. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 2.970 millj. króna skv. efnahagsreikningi en þar af nam eigið fé A-hluta 2.334,8 millj. króna.
Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins námu um 1.093 milljónum króna en starfsmannafjöldi sveitarfélagsins nam 136 stöðugildum í árslok.
Veltufé frá rekstri var 244 millj. króna og veltufjárhlutfall er 1,15. Handbært frá rekstri var 125,7 millj. króna.
Heildareignir bæjarsjóðs námu um 3.542 millj. króna og heildareignir sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 4.620 millj. króna í árslok 2016. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.207 millj. króna og í samanteknum ársreikningi um 1.649 millj. króna, og lækkuðu þar með milli ára um 84 milljónir.
Eigið fé bæjarsjóðs nam um 2.334,8 millj. króna og eigið fé í samanteknum reikningsskilum nam um 2.970 millj. króna í árslok 2015. Eiginfjárhlutfall er 65,92% á á árinu 2015 en var 63,03% árið áður.
Snæfellsbær fjárfesti á árinu fyrir 198,5 milljónir í varanlegum rekstrarfjármunum og tók engin ný lán á árinu 2016. Greidd voru niður lán að fjárhæð 157,8 milljónir.
Hlutfall reglulegra tekna af heildarskuldum og skuldbindingum er 61,64% hjá sjóðum A-hluta, en var 74,37% árið 2015, og 64,48% í samanteknum ársreikningi en var 76,80% árið 2015. Skv. 64. gr. 2. málsgr. sveitarstjórnarlaga á þetta hlutfall ekki að vera hærra en 150%. Fjárhagsstaða Snæfellsbæjar verður því að teljast afar góð.
Álagningarhlutfall útsvars var 14,52%. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam 0,44% á íbúðarhúsnæði og álagningarhlutfall á aðrar fasteignir nam 1,55%.
Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri, Kristinn Jónasson, í síma 433-6900, eða á kristinn@snb.is
Hægt verður að nálgast ásreikninginn á bæjarskrifstofunni Klettsbúð 4, Hellissandi, sími 433-6900. Einnig á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is.