REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 25. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.130.000 eigin hluti fyrir 114.790.000 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð     Eigin hlutir eftir viðskipti
19.6.2017 11:12 350.000 102,5 35.875.000 7.087.296
20.6.2017 09:35 350.000 101,5 35.525.000 7.437.296
21.6.2017 15:29 350.000 101,0 35.350.000 7.787.296
23.6.2017 13:06 80.000 100,5 8.040.000 7.867.296
Samtals   1.130.000   114.790.000  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 24. mars 2017.                              
                              
Reitir hafa nú keypt samtals 7.867.296 hluti í félaginu sem samsvarar 52,45% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 820.092.426 krónum sem samsvarar 54,67% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 7.867.296 hluti, eða 1,09% af heildarhlutafé félagsins.                              
                              
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.