REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 27. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.400.000 eigin hluti fyrir 134.365.000 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð          Eigin hlutir eftir viðskipti
3.7.2017 10:34 350.000 97,6 34.160.000 9.618.796
4.7.2017 14:42 350.000 97,0 33.950.000 9.968.796
6.7.2017 09:30 350.000 94,9 33.215.000 10.318.796
7.7.2017 13:53 350.000 94,4 33.040.000 10.668.796
Samtals   1.400.000   134.365.000                                  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 24. mars 2017.
                              
Reitir hafa nú keypt samtals 10.668.796 hluti í félaginu sem samsvarar 71,13% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 1.092.505.326 krónum sem samsvarar 72,83% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 10.668.796 hluti, eða 1,48% af heildarhlutafé félagsins.                              
                              
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.