REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 28. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 350.000 eigin hluti fyrir 33.005.914 kr. eins og hér segir:

Vika Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir
eftir viðskipti
28 11.7.2017 11:45 3.049 94,6 288.435 10.671.845
28 11.7.2017 14:53 346.951 94,3 32.717.479 11.018.796
  Samtals   350.000   33.005.914  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 24. mars 2017.

Reitir hafa nú keypt samtals 11.018.796 hluti í félaginu sem samsvarar 73,46% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 1.125.511.240 krónum sem samsvarar 75,03% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 11.018.796 hluti, eða 1,53% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.