Nýherji hf. Uppgjör 2. ársfjórðungs 2017

237 mkr heildarhagnaður á fyrri árshelmingi


Eiginfjárhlutfall 43,8% í lok annars ársfjórðungs 

Helstu upplýsingar:

  • Sala á vöru og þjónustu nam 3.608 mkr á öðrum ársfjórðungi (4,9% tekjusamdráttur frá F2 2016) og 7.605 mkr á fyrri árshelmingi (6,7% tekjuaukning frá 1H 2016) [F2 2016: 3.794 mkr, 1H 2016: 7.126 mkr]
  • Framlegð nam 904 mkr (25,0%) á öðrum ársfjórðungi og 1.880 mkr (24,7%) á fyrri árshelmingi 2017 [F2 2016: 931 mkr (24,5%), 1H 2016: 1.816 mkr (25,5%)]
  • EBITDA nam 211 mkr (5,9%) á öðrum ársfjórðungi og 453 mkr á fyrri árshelmingi (6,0%)  [F2 2016: 259 mkr (6,8%), 1H 2016: 439 mkr (6,2%)]
  • Heildarhagnaður á öðrum ársfjórðungi var 166 mkr og 237 mkr á fyrri árshelmingi [F2 2016: 73 mkr, 1H 2016: 111 mkr]
  • Eiginfjárhlutfall var 43,8% í lok annars ársfjórðungs en var 39,7% í lok mars

Finnur Oddsson, forstjóri:

„Hagnaðar Nýherjasamstæðunnar á öðrum ársfjórðungi og fyrri árshelmingi í heild var góður, 237mkr samanborið við 111 mkr í fyrra. Engu að síður eru all nokkrar ögranir í rekstri samstæðunnar, en áframhaldandi launaskrið og miklar sveiflur á gengi íslensku krónunnar hafa almennt neikvæð áhrif á rekstur og draga úr samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja, bæði til skemmri og lengri tíma.

Samdráttur var í tekjum og rekstrarhagnaði á öðrum ársfjórðungi, sem er ekki ásættanlegt þó samdráttinn megi að hluta skýra með mikilli styrkingu krónunnar á tímabilinu þar sem stór hluti tekna samstæðunnar er í erlendum gjaldmiðlum eða tengdur verði þeirra. Félagið hefur að hluta til varist gengissveiflum með áhættuvörnum sem styrkja niðurstöðu uppgjörs að þessu sinni.

Drifkraftur í vexti Nýherjasamstæðunnar á fyrri helmingi árs er áfram í sölu og þjónustu á hugbúnaðarlausnum, tækniráðgjöf og rekstrarþjónustu, en spurn eftir þjónustu af þessu tagi, skýlausnum og aukinni sjálfvirkni, hefur farið vaxandi síðustu misseri.  Sala á PC tölvum og hljóð- og myndbúnaði hefur gengið vel en samdráttur var í sölu á miðlægum búnaði á öðrum ársfjórðungi.

Tekjur Tempo vaxa áfram hratt, um 36% (í USD) frá fyrra ári.  Mikilvægum stefnumótandi áfanga var náð þegar ný kynslóð af Tempo Cloud for JIRA var tekin í notkun. Flutningi viðskiptavina yfir á nýja lausn er lokið, en með þessari nýju kynslóð er virkni Tempo lausnarinnar bætt til muna og mögulegt er að samþætta hana við aðrar skýjaþjónustur en eingöngu JIRA frá Atlassiðn. Við horfum nú til þeirra tækifæra sem nú opnast til frekari vaxtar og vöruþróunar á mun stærri markaði en hefur hingað til verið aðgengilegur fyrir Tempo.  

Umsvif Applicon, TM Software og hugbúnaðarsviðs Nýherja jukust einnig, en gróska er í þróun hugbúnaðarlausna. Meðal nýrra lausna sem kynntar hafa verið eru Driver Guide frá TM Software, sem er lausn fyrir bílaleigur og CCQ, gæðastjórnunarlausn í skýinu, sem hvoru tveggja hafa hlotið góðar viðtökur. Stefnt er að því að bjóða CCQ og Driver Guide á fleiri mörkuðum en þeim íslenska þegar fram líða stundir.

Við erum um margt ánægð með stöðu Nýherjasamstæðunnar, bæði m.t.t. áhugaverðra verkefna sem við sinnum fyrir góða viðskiptavini og einnig hefur fjárhagsstaðan sjaldan verið betri, en eiginfjárhlutfall stendur nú 44%.  Félagið stendur því sterkt í dag, en það er ljóst að áfram má búast við að ákveðnir þættir í rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja verði ögrandi og að alþjóðleg samkeppni hafi æ meiri áhrif á innlendan rekstur.“

Nánari upplýsingar

Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is. 


Attachments

2017.08.18 - Fréttatilkynning Árshlutauppgjör F2 2017.pdf Nýherji árshlutareikn. 30.6.2017.pdf