Útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir seinni hluta árs 2017


Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2017 kemur fram að Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 3.012 mkr. vegna framkvæmda. Nú þegar hefur Reykjavíkurborg aflað 1.484 mkr. til framkvæmda í útboðum í febrúar, apríl og maí. Stefnt er að því að afla 1.528 mkr. á síðari hluta ársins í útboðum.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum 14. september 2017 eftirfarandi útboðsdagsetningar fyrir seinni hluta árs 2017.

Skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar verða á eftirfarandi dögum: 20. september, 18. október og 22. nóvember.

Gert er ráð fyrir að lántakan verði framkvæmd með stækkun á verðtryggðum skuldabréfaflokki RVK 53 1 og óverðtryggðum skuldabréfaflokki RVKN 35 1. Heildarstærð RVK 53 1 er ISK 22.190.000.000 að nafnvirði. Heildarstærð RVKN 35 1 er ISK 5.690.000.000 að nafnvirði.

Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð.

Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi.

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 411-1111