Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018


Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018 gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðureiknings verði 544 m.kr. og rekstarniðurstaða A-hluta bæjasjóðs 110 m.kr.  Fjárfest verði fyrir 1.850 m.kr. og að skuldahlutfall nemi 81,1% og skuldaviðmið 65,5%.  Framlegð nemi 14,7% og veltufé frá rekstri 12,4%.  Jafnframt því sem næsta árs áætlun er lögð fram er lögð fram áætlun til næstu 3ja ára þar á eftir.
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018 verður tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar fimmtudaginn 2. nóvember nk. og síðari umræða fer fram fimmtudaginn 7. desember 2017.


Attachments

Garðabær Fjárhagsáætlun 2018-2021 Fyrri umræða31 10.pdf