Arion banki, Landsbankinn og Kvika banki með mestu hlutdeild á Nasdaq Iceland 2017


Reykjavík, 2. janúar, 2018 – Nasdaq Iceland (Kauphöllin) (NASDAQ:NDAQ) hefur tekið saman hlutdeild kauphallaraðila í viðskiptum á Aðalmarkaði Kauphallarinnar á síðasta ári.

Á hlutabréfamarkaði var Arion banki með mestu hlutdeildina, 24,3%, Landsbankinn var næstur í röðinni með 20,3% og þar næstir voru Fossar markaðir með 14,7% hlutdeild (sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild allra kauphallaraðila).

Ef litið er eingöngu til hlutabréfaviðskipta sem eiga sér stað við pörun tilboða í tilboðabókum (pöruð viðskipti) er Arion banki einnig með mestu hlutdeildina, 27,8%, Landsbankinn með þá næst mestu, 22,6% og Íslandsbanki í þriðja sæti með 18,7% hlutdeild.

Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 17,9%, Íslandsbanki fylgdi í kjölfarið með 17,1% og Arion banki var með þriðju hæstu hlutdeildina, 16,5% (sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild allra kauphallaraðila).

Kvika banki er með mestu hlutdeildina í pöruðum skuldabréfaviðskiptum, 25,8%, þá kemur Íslandsbanki með 22,6% og Arion banki þar næst með 22,1% hlutdeild.

Á Nasdaq Iceland hafa 13 kauphallaraðilar leyfi til að eiga viðskipti á hlutabréfamarkaði og 11 á skuldabréfamarkaði, sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/membership/membership-lists   

Upplýsingar um hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði má sjá á fleiri myndum í viðhengi.

 

#

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 90 mörkuðum í 70 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,900 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 12 billjón Bandaríkjadala og um það bil 18 þúsund viðskiptavina. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/ 

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

 

Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland, Nasdaq Riga, Nasdaq Stockholm, Nasdaq Tallinn, Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing and Nasdaq Broker Services are respectively brand names for the regulated markets of Nasdaq Copenhagen A/S, Nasdaq Helsinki Ltd., Nasdaq Iceland hf., Nasdaq Riga, AS, Nasdaq Stockholm AB, Nasdaq Tallinn AS, AB Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing AB and Nasdaq Broker Services AB. Nasdaq Nordic represents the common offering by Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland and Nasdaq Stockholm. Nasdaq Baltic represents the common offering by Nasdaq Tallinn, Nasdaq Riga and Nasdaq Vilnius.

         FJÖLMIÐLASAMSKIPTI
          Kristín Jóhannsdóttir
          868 9836
          kristin.johannsdottir@nasdaq.com


Attachments

Hlutdeildarmyndir.xlsx 2018_0102_markaðshlutdeild2017_IceMyndir.pdf