Nýr framkvæmdastjóri Nasdaq verðbréfamiðstöðvar


Reykjavík,  5. janúar, 2018 -- Magnús Kristinn Ásgeirsson, lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Nasdaq verðbréfamiðstöðvar.Tekur hann við starfinu af Guðrúnu Ó. Blöndal, sem gegnt hefur starfinu undanfarin fjögur ár en lætur nú af störfum að eigin ósk.

Magnús er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og hlaut Mag Jur. gráðu frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2009. Hann hefur starfað hjá Nasdaq síðan sumarið 2007; sem lögfræðingur á eftirlitssviði Nasdaq á Íslandi (Kauphöllinni) 2008-2009, hjá viðskiptaeftirliti Nasdaq í Stokkhólmi 2009-2010 og síðan aftur hjá Kauphöllinni sem yfirlögfræðingur hennar frá árinu 2011. Magnús tók þá einnig við stöðu yfirlögfræðings allrar starfsemi Nasdaq á Íslandi sem telur Kauphöllina og Nasdaq verðbréfamiðstöð, seint á árinu 2013  og hefur gegnt þeirri stöðu fram að þessu.

„Við hjá Nasdaq þekkjum Magnús og hans störf vel og erum mjög ánægð með að hann skuli hafa þegið boð um að taka að sér nýtt hlutverk innan fyrirtækisins.“, segir Arminta Saladziene, framkvæmdastjóri verðbréfalausna hjá Nasdaq. „Jafnframt þökkum við Guðrúnu Blöndal fyrir afskaplega vel unnin störf og óskum henni alls velfarnaðar.“

Magnús mun hefja störf þann 1. febrúar.

(mynd í viðhengi)

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 90 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,900 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 12 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. 

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. 

         Fjölmiðlasamskipti
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         8689836


Attachments

magnus_asgeirsson_kauphollin_svhv_15.jpg