VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í apríl 2018


Samsett hlutfall var 117,6% í apríl en það var 70,9% í apríl 2017. Samsett hlutfall það sem af er ári er 102,4% og samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 97%.

Áhrif af bruna sem varð í Miðhrauni í Garðabæ þann 5. apríl síðastliðinn var sem nemur 18,4 prósentustigum á samsett hlutfall mánaðarins.

Nafnhækkun fjárfestingaeigna í apríl var 0,4% en nafnhækkun frá áramótum er 3,3%.

VÍS greiddi viðskiptavinum sínum um 1,4 milljarða króna í tjónabætur í apríl og hefur greitt viðskiptavinum 5 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.

*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður sem hlutfall af iðgjöldum

**Hafa ber í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast mjög á milli mánaða

Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105.