Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 20. viku 2018 keypti Síminn hf. 27.000.000 eigin hluti að kaupverði 118.462.500 kr. samkvæmt sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð (kr.) Eigin hlutir eftir viðskipti
14.5.2018 14:34   5.000.000  4,37   21.850.000  105.082.637
15.5.2018 10:59   7.000.000  4,4   30.800.000  112.082.637
17.5.2018 09:56   7.500.000  4,395   32.962.500  119.582.637
18.5.2018 10:10   5.000.000  4,38   21.900.000  124.582.637
18.5.2018 10:48   2.500.000  4,38   10.950.000  127.082.637
      27.000.000      118.462.500   

Síminn átti 294.284.379 eigin hluti í lok 19. viku en þann 14. maí 2018 var hlutafé félagsins lækkað um 194.201.742 hluti til jöfnunar á eigin hlutum félagsins og átti félagið því 100.082.637 eigin hluti fyrir viðskiptin í 20. viku. Hlutafjárlækkunin er samkvæmt samþykkt aðalfundi Símans hf. sem haldinn var þann 15. mars 2018, vísað er til tilkynningar félagsins sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 15. mars sl. þar sem greint er frá niðurstöðum aðalfundar.

Eftir viðskiptin í 20. viku á félagið 127.082.637 eigin hluti eða sem nemur 1,37% af útgefnum hlutum í félaginu.

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í  Kauphöll Íslands hf. þann 20. apríl 2018. 

Síminn hefur keypt samtals 124.500.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,35% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 550.987.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.242,4 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2019, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2019 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is