Viðskiptayfirlit júní 2018 – Nasdaq Iceland


Reykjavík, mánudagur, 2. júlí, 2018 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.  Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir júní 2018 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

  • Heildarviðskipti með hlutabréf í júní námu 33.346 milljónum eða 1.588 milljónum á dag. Það er 25% lækkun frá fyrri mánuði, en í maí námu viðskipti með hlutabréf 2.113 milljónum á dag.  Þetta er 33% lækkun á milli ára (viðskipti í júní 2017 námu 2.355 milljónum á dag).
  • Mest voru viðskipti með bréf Marel (MARL), 7.248 milljónir, Icelandair Group (ICEAIR), 3.840 milljónir, Haga (HAGA), 2.675 milljónir, Reita fasteignafélags (REITIR), 2.303 milljónir, og Regins (REGINN), 2.137 milljónir.
  • Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 0,6% á milli mánaða og stendur nú í 1.716 stigum.
  • Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 33,0% (21,4% á árinu), Arion banki með 25,7% (27,3% á árinu), og Íslandsbanki með 15,3% (13,6% á árinu).
  • Í lok júní voru hlutabréf 23 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 1.040 milljörðum króna (samanborið við 870 milljarða í maí). Ein nýskráning átti sér stað í mánuðinum en hlutabréf Arion banka voru samtímis skráð á aðalmörkuðum Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm þann 15. júní.

Skuldabréf:

  • Heildarviðskipti með skuldabréf námu 63,1 milljarði í síðasta mánuði sem samsvarar 3,0 milljarða veltu á dag. Þetta er 25% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í maí námu 4,0 milljörðum á dag), og 45% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í júní 2017 námu 5,5 milljörðum á dag).
  • Alls námu viðskipti með ríkisbréf 48,9 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 9,2 milljörðum, og viðskipti með íbúðabréf námu 1,0 milljarði. Mest voru viðskipti með RIKB 28 1115, 8,5 milljarðar, RIKB 25 0612, 8,3 milljarðar, RIKH 18 1009, 8,1 milljarður, RIKB 31 0124, 6,9 milljarðar, og RIKB 22 1026, 5,1 milljarður.
  • Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina 23,7% (15,9% á árinu), Landsbankinn með 17,0% (17,1% á árinu), og Fossar markaðir með 16,9% (12,1% á árinu).
  • Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,2% í júní og stendur í 1.380 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) lækkaði um 0,2% en sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 0,4%.                                             

Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 90 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,900 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 13 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

 

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

 

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         8689836