Fjöldi farþega Icelandair í júlí nam 519 þúsund og fækkaði þeim um 5% miðað við júlí á síðasta ári. Framboðnir sætiskílómetrar (ASK) jukust um 2%, en framboðnum sætum fækkaði um 3% á milli ára. Skýrist munurinn af því að með auknu framboði til N-Ameríku hefur meðalfluglengd í km. aukist milli ára, eða sem nemur 5%. Sætanýting var 85,3% samanborið við við 89,2% í júlí á síðasta ári. Í júlí er sama þróun og var á öðrum ársfjórðungi. Sala á áfangastaði í N-Ameríku hefur ekki fylgt framboðsaukningunni eftir á meðan að sala til Evrópu hefur verið mjög góð. Til samanburðar þá var sætanýting á leiðum Icelandair í Evrópu 90,7% og jókst um 2,9 prósentustig á milli ára á meðan að sætanýting á leiðum félagsins til N-Ameríku var 81,9% og lækkaði um 8,9 prósentustig á milli ára. Fjöldi farþega á heimamarkaðinum frá Íslandi og ferðamannamarkaðinum til Íslands jókst á milli ára, en dróst saman á N-Atlantshafsmarkaðinum.
Farþegar Air Iceland Connect voru tæplega 32 þúsund og fækkaði um 14% á milli ára. Um miðjan maí í ár hætti félagið flugi til Belfast og Aberdeen og einnig á milli Keflavíkur og Akureyrar og skýrir það fækkunina milli ára. Sætanýting nam 72,4% og jókst um 2,6 prósentustig á milli ára. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi jókst um 7% á milli ára. Fraktflutningar drógust saman um 6% á milli ára. Framboðnum gistinóttum hjá hótelum félagsins fjölgaði um 9% á milli ára. Herbergjanýting var 84,1% samanborið við 87,4% í júlí 2017.
ICELANDAIR | JÚL 18 | JÚL 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 519.332 | 545.230 | -5% | 2.295.185 | 2.297.565 | 0% |
Sætanýting | 85,3% | 89,2% | -3,9 %-stig | 80,2% | 82,9% | -2,7 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.942,3 | 1.906,9 | 2% | 9.010,2 | 8.560,4 | 5% |
Seldir sætiskm. (RPK'000,000) | 1.656,3 | 1.700,6 | -3% | 7.230,6 | 7.100,9 | 2% |
Meðal flugleið (KM) | 3.244 | 3.079 | 5% | 3.172 | 3.053 | 4% |
AIR ICELAND CONNECT | JÚL 18 | JÚL 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 31.523 | 36.550 | -14% | 187.988 | 197.078 | -5% |
Sætanýting | 72,4% | 69,7% | 2,6 %-stig | 63,8% | 66,3% | -2,5 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 19,0 | 26,7 | -29% | 111,9 | 117,4 | -5% |
LEIGUFLUG | JÚL 18 | JÚL 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 90,9% | 100,0% | -9,1 %-stig | 93,4% | 96,7% | -3,3 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.669 | 2.489 | 7% | 20.353 | 15.151 | 34% |
FRAKTFLUTNINGAR | JÚL 18 | JÚL 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 10.081 | 10.778 | -6% | 70.925 | 65.004 | 9% |
HÓTEL | JÚL 18 | JÚL 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 51.475 | 45.647 | 13% | 230.979 | 222.080 | 4% |
Seldar gistinætur | 43.276 | 39.882 | 9% | 179.815 | 178.303 | 1% |
Herbergjanýting | 84,1% | 87,4% | -3,3 %-stig | 77,8% | 80,3% | -2,4 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801
Viðhengi