Eik fasteignafélag hf. hefur lokið stækkun á skuldabréfaflokknum EIK 161047. Skuldabréfin bera 3,5% fasta ársvexti og voru seld á ávöxtunarkröfunni 3,6%.
Seld voru skuldabréf að nafnverði 4.220 milljónir króna og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar að nafnverði 20.000 milljónir króna.
Fossar markaðir höfðu umsjón með viðskiptunum og stækkun skuldabréfaflokksins.
Nánari upplýsingar veita:
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is,s. 590-2200 / 861-3027
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs,lydur@eik.is, s. 590-2209 / 820-8980.