Viðskiptayfirlit ágúst 2018 – Nasdaq Iceland


Viðskiptayfirlit júlí 2018 – Nasdaq Iceland

Reykjavík, mánudagur, 3. september, 2018 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.  Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir ágúst 2018 eru eftirfarandi:   

 

Hlutabréf:

  • Heildarviðskipti með hlutabréf í ágúst námu 36.675 milljónum eða 1.667 milljónum á dag. Það er 4% hækkun frá fyrri mánuði, en í júlí námu viðskipti með hlutabréf 1.609 milljónum á dag.  Þetta er 16% lækkun á milli ára (viðskipti í ágúst 2017 námu 1.993 milljónum á dag).
  • Mest voru viðskipti með bréf Marel (MARL), 7.713 milljónir, Icelandair Group (ICEAIR), 4.844 milljónir, N1 (N1), 3.372 milljónir, Símans (SIMINN), 2.658 milljónir, og Reita (REITIR), 2.543 milljónir.
  • Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 0,2% á milli mánaða og stendur nú í 1.594 stigum.
  • Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 22,5% (20,98% á árinu), Arion banki með 21,1% (25,2% á árinu) og Kvika banki með 18,0% (14,4% á árinu).
  • Í lok ágúst voru hlutabréf 23 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 997 milljarði króna (samanborið við 991 milljarða í júlí).

Skuldabréf:

  • Heildarviðskipti með skuldabréf námu 79,2 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 3,6 milljarða veltu á dag. Þetta er 13,8% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í júlí námu 3,2 milljörðum á dag), og 26,3% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í ágúst 2017 námu 4,9 milljörðum á dag).
  • Alls námu viðskipti með ríkisbréf 59,2 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 10,6 milljörðum, og viðskipti með íbúðabréf námu 3,6 milljarði. Mest voru viðskipti með RIKB 28 1115 (10,1 milljarðar), RIKB 22 1026 (9,9 milljarðar), RIKH 18 1009 (7,0 milljarðar), RIKB 20 0205 (6,4 milljarðar), og RIKB 25 0612 (6,3 milljarðar).
  • Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 21,5% (17,63% á árinu), Fossar markaðir með 17,9% (12,6% á árinu), og  Íslandsbanki með 14,5% (16,0% á árinu).
  • Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,2% í ágúst og stendur í 1.397 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) lækkaði um 0,4% en sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 0,5%.                                

               

Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.

 

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 100 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 4,000 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 14 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

 

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

   

         FJÖLMIÐLASAMSKIPTI
         Baldur Thorlacius
         696 3388
         baldur.thorlacius@nasdaq.com


Attachments

201808.xlsx